|
|
||||||||
| Home | Blog | Committee | Events | Join | Photos | Equipment | Contact | Links |
Icelandic introductionAllt sem þú þarft að vita um Breakaway(The Icelandic version) Breakaway er fjallgönguklúbbur St Andrews háskóla. Við skipuleggjum gönguferðir og fjallgöngur sem henta öllum óháð getu eða reynslu. Ferðir eru yfirleitt farnar aðra hverja helgi. DagsferðirDagsferðir taka allan daginn, brottför er um 7.30 árdegis og er yfirleitt komið aftur til St Andrews í kringum kl. 8:00 að kvöldi. Að lokinni göngu er alltaf komið við í krá þannig að rétt er að mæla með að göngufólk taki með sér pening fyrir mat og drykk. Dagsferðir kosta £10.
HelgarferðirHelgarferðirnar gera okkur kleyft að njóta göngulands sem er í meiri fjarlægð frá St Andrews, til að mynda Isle of Skye eða Lake District á Englandi. Séð er fyrir gistingu, akstri og kvöldmat. Almennt þarf ekki að taka með svefnpoka. Þó þarf að taka með hefðbundinn göngubúnað ásamt auka nesti og hversdagsföt fyrir kvöldin. Oftast er lagt af stað frá St Andrews kl. 5:00 á föstudagseftirðmiðdegi og komið aftur á sunnudags- eða mánudagskvöldi.
BúnaðurNauðsynlegt er að hafa góða gönguskó sem veita stuðning um öklann, vatnsheldan fatnað, nesti (þ.m.t. hádegismat) og nóg af vatni eða öðrum vökva. Hægt er að nálgast ítarlegan lista yfir nauðsynlegan búnað hér, á ensku. SkráningSkráning í ferðir fer fram á miðvikudögum,
kl. 12:45 - 1:15 síðdegis í Mansfield
byggingunni, þar sem raðað er í ferðir eftir því hverjir
mæta fyrst. Skráningardagsetning er auglýst á þessari heimasíðu
með nokkura vikna fyrirvara. Jafnframt er sendur út tölvupóstur í gegnum netfangaskrána. Til þess að geta skráð sig í gönguferðir þarf viðkomandi að vera félagi í Breakaway, félagsgjald er £6 á ári. Ef þú getur ekki komist á skráninguna sjálfa getur þú beðið einhvern annan um að skrá þig í staðinn. Þó getur einn einstaklingur ekki skráð meira en eitt nafn. Ef þú hefur skráð þig í ferð en kemst ekki með, láttu þá vinsamlegast vita eins fljótt og hægt er því við getum ekki endurgreitt fyrir ferðina nema hægt sé að finna einhvern sem fer í staðinn. FélagslífBreakaway er afar líflegt félag og eru samkomur (kráarkvöld) á hverju þriðjudagskvöldi frá kl. 9:00 í „The Whey Pat” og eru allir velkomnir. Þar gefst kærkomið tækifæri til að kynnast öðru göngufólki og spyrja nánar út í Breakaway eða fjallgöngur alment. Jafnframt skipuleggjum við ýmiskonar viðburði sem hægt er að lesa meira um hér Hikaðu ekki við að hafa samband ef þú hefur einhverjar spurningar hafa samband Getur þú þýtt þessa síðu á eitthvert tungumál? hafa samband
Translated By Donald Petersson. |
||||||||
Please review our Code of Practise, and our Disclaimer before you attend or sign up for any of our events.
All content belongs to Breakaway. This website was designed and built by Patrick Sanderson.
It was maintained and updated by Joé Schaul, Ian Rathkey, Ross Bremner
and currently Ben Kenny.
Breakaway is a registered charity in Scotland, Scottish Charity number SCO19883.
html |
css |
website details